Árni Vilhjálmsson skoraði fyrra mark Breiðabliks sem vann 2-0 útisigur gegn Víkingi Ólafsvík í kvöld. Árni var með þrjár stoðsendingar í 3-0 sigrinum gegn Fjölni á dögunum og kemur mjög sterkur inn í Pepsi-deildina.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 0 - 2 Breiðablik
„Ég er mjög sáttur. Þetta var góður leikur og þrír punktar. Maður fer aldrei svekktur heim eftir þannig leik," segir Árni.
Er hann kominn heim til að verða Íslandsmeistari með Breiðabliki?
„Ég er kominn heim til að vinna eins marga leiki og hægt er með liðinu. Auðvitað reynum við að stefna að því að vinna titilinn."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir