Víkingur Ólafsvík hefur tapað tveimur leikjum í röð en liðið beið lægri hlut fyrir Breiðabliki í kvöld. Ejub Purisevic var svekktur eftir leik.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 0 - 2 Breiðablik
„Ég er alls ekki sáttur. Mér fannst við vera oft eins og á æfingu, menn voru 50%. Þegar við fengum boltann vantaði gæði til að halda honum. Við misstum hann oft klaufalega," segir Ejub sem tók undir með blaðamanni Morgunblaðsins að þetta hefði verið einn versti leikur Ólsara í sumar.
„Sérstaklega varnarlega og á miðjunni vorum við slakir."
Sóknarmaðurinn Hrvoje Tokic var í banni í kvöld en hann hefur verið orðaður við önnur félög og hefur Valur meðal annars gert tilboð. Er Tokic á förum?
„Ég veit ekkert um það. Ég er ekkert inni í þessum málum."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir