„Grátlegast við þetta er að það er dómarinn sem eyðilagði þetta," sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari Fylkis eftir leik við Stjörnuna í Pepsi deild karla á Floridana vellinum í Árbæ í kvöld, leiknum lauk með 2-1 sigri Stjörnunar.
Hermann var ósáttur við aukaspyrnu sem Stjörnumenn jöfnuðu úr áður en Hilmar Árni Halldórsson skoraði sigurmarkið.
„Þetta er mjög ódýr aukaspyrna. Það eru góðir spyrnumenn hérna og við vitum að þetta er dauðafæri. Þetta er algjör gjöf. Ég er fúll með dómarann. Hann gaf þeim þetta. Við vorum með leikinn algjörlega í vasanum."

Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 2 Stjarnan
„Frammistaðan hjá okkur var frábær í dag, skipulagið og vinnslan. Þetta er rosalega grátlegt," sagði Hermann í samtali við Fótbolta.net
Aðspurður um tilfinninguna þegar Hilmar Árni skoraði sigurmarkið á 97. mínútu sagði Hermann: „Mér er búið að vera óglatt svona meira og minna eftir nokkra leiki og manni verður bara óglatt aftur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir