Kolo Toure er kominn til Celtic og búinn að skrifa undir eins ár samning við skoska félagið.
Celtic borgar ekkert fyrir Toure þar sem samningurinn hans við Liverpool var runninn út.
Hinn 35 ára gamli Toure sameinast því Brendan Rodgers, þjálfara sínum hjá Liverpool á nýjan leik.
Þetta er í fyrsta skipti sem Toure spilar í Skotlandi og í fyrsta skipti sem hann spilar utan Englands síðan 2002.
Athugasemdir