Per Mertesacker, leikmaður Arsenal viðurkennir að liðið hafi verið heppið að lenda í 2. sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þar sem liðið spilaði oft á tíðum ekki nægilega vel.
Arsenal tókst að komast yfir Tottenham í síðasta leik tímabilsins eftir að Spurs steinlá fyrir Newcastle í síðasta leik en Newcastle var þá fallið.
Það munaði aðeins einu stigi á Tottenham og Arsenal en Leicester City vann deildina með tíu stiga mun.
„Miðað við hvernig siðasta leiktíð var þá vorum við heppnir að ná 2. sæti. Við náðum að snúa genginu við í lokin en það var hálfgert kraftaverk að við náðum 2. sæti."
„Það er virkilega svekkjandi að Leicester náði að notfæra sér að stóru liðin voru að tapa stigum, því miður gerðum við það ekki," sagði Þjóðverjinn.
Athugasemdir