Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. júlí 2016 21:26
Magnús Már Einarsson
Pétur Viðars nær tveimur leikjum í viðbót með FH
Pétur í leik gegn Víkingi R. á dögunum.
Pétur í leik gegn Víkingi R. á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Pétur Viðarsson spilar tvo leiki til viðbótar með FH áður en hann fer aftur til Ástralíu þar sem hann er í námi.

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, staðfesti þetta eftir 2-0 sigur FH á Þrótti R. í kvöld.

Pétur verður með FH gegn ÍBV í undanúrslitum Borgunarbikarsins á fimmtudag og hann nær líka leiknum við ÍA í Pepsi-deildinni þann 3. ágúst.

Pétur var í byrjunarliðinu gegn Þrótti í kvöld en hann hefur spilað níu leiki í Pepsi-deildinni og Borgunarbikarnum í sumar.

Pétur ætlaði ekki að spila með FH í sumar vegna námsins í Ástralíu en hann kom óvænt aftur inn í leikmannahóp liðsins í maí og hefur spilað með Fimleikafélaginu síðan þá.
Athugasemdir
banner
banner
banner