Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. júlí 2017 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cassano kennir eiginkonu sinni um rugling sem skapaðist
Mynd: Getty Images
Mikill ruglingur hefur skapast í kringum hinn Ítalska Antonio Cassano á undanförnum dögum. Í dag sendi hann frá sér yfirlýsingu þar sem hann greindi frá því að hann væri hættur í fótbolta.

Þetta er í annað skipti á innan við viku sem hann leggur skóna á hilluna! Hinn 35 ára gamli Cassano fór til Hellas Verona þann 10. júlí, en nokkrum dögum síðar sagði hann að hann væri hættur.

Nokkrum klukkutímum síðar dró hann þá yfirlýsingu til baka.

Í dag skapaðist nokkur ruglingur. Eiginkona hans tísti að hann væri hættur hjá Verona en ekki í fótbolta, en fljótlega breytti hann um stefnu. Hann sagði að hann væri hættur í fótbolta fyrir fullt og allt.

„Eiginkona mín túlkaði þetta vitlaust, ég er hættur í fótbolta," sagði Cassano um tístin sem eiginkona hans sendi frá sér.

Sjá einnig:
Cassano hættur við að hætta við að hætta
Athugasemdir
banner
banner
banner