Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. júlí 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
Marseille í viðræðum um kaup á Dembele
Mynd: Getty Images
Franska félagið Marseille er í viðræðum við Celtic um kaup á framherjanum Moussa Dembele.

Forráðamenn félaganna hittust í Glasgow á laugardag í tengslum við æfingaleik Marseille og Rangers.

Celtic vill fá 20 milljónir punda fyrir Dembele en hann er í algjöru lykilhlutverki hjá skoska félaginu.

Brendan Rodgers, stjóri Celtic, vill ekki selja Dembele fyrr en eftir undankeppni Meistaradeildarinnar í næsta mánuði.

Hinn 21 árs gamli Dembele kom til Celtic frá Fulham í fyrrasumar en skoska félagið þurfti einungis að greiða 500 þúsund pund í uppeldisbætur fyrir hann þá.
Athugasemdir
banner
banner