Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 24. júlí 2017 19:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Martial þarf að sýna meiri stöðugleika
Anthony Martial.
Anthony Martial.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hefur kallað eftir því að Anthony Martial sýni meiri stöðugleika í leik sínum.

Hinn 21 árs gamli Martial sýndi frábær tilþrif þegar hann lagði upp mark fyrir Jesse Lingard gegn Real Madrid í gærkvöldi.

Martial lék þá á Luka Modric og Daniel Carvajal áður en hann sendi á Lingard.

„Hann er ungur leikmaður. Hann á ennþá tíma til að læra, bæta sig og vaxa. Við viljum meiri stöðugleika hjá honum," sagði Mourinho.

„Hann er að æfa betur en áður og hann er að leggja harðar að sér en áður."



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner