Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 24. júlí 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Pedro þarf grímu eftir samstuðið við Ospina
Mynd: Getty Images
Pedro, leikmaður Chelsea, meiddist á höfði í leik liðsins gegn Arsenal um helgina.

Hinn 29 ára gamli Pedro fór beint upp á spítala eftir að hafa lent í samstuði við David Ospina, markvörð Arsenal.

Pedro fór í kjölfarið heim til London úr æfingaferð Chelsea í Kína.

Spánverjinn þarf að hvíla næstu tíu dagana en hann má síðan hefja æfingar á nýjan leik með grímu.

Antonio Conte, stjóri Chelsea, staðfesti þetta í dag en ensku meistararnir eru nú staddir í Singapúr þar sem framundan eru leikir gegn Inter og Bayern Munchen.
Athugasemdir
banner
banner
banner