Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Neymar hjá Barcelona undanfarna daga.
Sky sagði á laugardag að 90% líkur væru á að Neymar myndi fara frá Barcelona í sumar en orðrómur hefur verið um að PSG vilji kaupa hann á 199 milljónir punda sem er langhæsta upphæð sögunnar.
Sky sagði á laugardag að 90% líkur væru á að Neymar myndi fara frá Barcelona í sumar en orðrómur hefur verið um að PSG vilji kaupa hann á 199 milljónir punda sem er langhæsta upphæð sögunnar.
Gerard Pique, varnarmaður Barcelona, birti áhugaverða færslu á Instagram í gærkvöldi en þar var hann með mynd af sér og Neymar.
Við myndina skrifaði Pique: „Se queda" sem þýðir „hann verður áfram."
Hvort þetta sé rétt hjá Pique verður síðan að koma í ljós en Neymar hefur sjálfur ekki staðfest neitt ennþá.
Athugasemdir