Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 24. júlí 2017 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pochettino: Sissoko er í plönum okkar
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, ætlar ekki að selja Moussa Sissoko frá Spurs í sumar.

Sissoko olli miklum vonbrigðum á sínu fyrsta tímabili hjá Spurs, en hann fór ekki með félaginu í æfingaferð á dögunum.

Eftir að Sissoko var ekki valinn í æfingahópinn fóru af stað sögusagnir að hann væri á förum frá Tottenham, en það er ekki rétt að mati Pochettino. Sissoko er ekki á förum.

„Hann er að æfa á æfingasvæði okkar," sagði Pochettino við ESPN. „Hann er enn í leikmannahópi okkar."

„Hann er í plönum okkar fyrir tímabilið."
Athugasemdir
banner
banner
banner