Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 24. júlí 2017 16:15
Magnús Már Einarsson
UEFA úrskurðar Bailly í þriggja leikja bann
Mynd: Getty Images
UEFA úrskurðaði í dag Eric Bailly, varnarmann Manchester United, í þriggja leikja bann.

Bailly fékk rauða spjaldið gegn Celta Vigo í undanúrslitunum í vor þegar hann sló til Facundo Roncaglia.

Bailly tók fyrsta leikinn í banninu út í úrslitaleiknum gegn Ajax í maí.

Hann verður einnig í banni gegn Real Madrid í leiknum um Ofurbikarinn þann 8. ágúst sem og í fyrsta leik United í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner