Carlo Ancelotti, stjóri Bayern München, hefur útilokað að miðjumaðurinn Arturo Vidal fari til Manchester United.
United er að leita að miðjumanni og Vidal er einn af þeim sem hefur verið nefndur í tengslum við það.
Vidal er þó ekki á leið til Man Utd ef marka má orð Ancelotti.
United er að leita að miðjumanni og Vidal er einn af þeim sem hefur verið nefndur í tengslum við það.
Vidal er þó ekki á leið til Man Utd ef marka má orð Ancelotti.
„Hvað varðar Vidal, ekki séns," sagði Ancelotti aðspurður út í áhuga Manchester United á leikmanninum.
„Hann er okkar leikmaður og ég ber mikið traust til hans."
„Ég veit að þetta eru sögusagnir og við erum vanir sögusögnum. Hann verður 100% áfram hjá okkur, ég er viss um það."
Athugasemdir