Jóhann Helgi Hannesson, leikmaður Þórs, komst á blað í gær er liðið vann Gróttu með fjórum mörkum gegn tveimur í Lengjudeildinni.
Jóhann hefur verið iðinn við kolann undanfarið og hefur skorað í síðustu þremur leikjum Þórs.
Þórsarar hafa verið á góðu flugi undanfarið og eru taplausir í sjö leikjum en þar inni eru nokkur jafntefli.
Liðið situr í sjötta sæti Lengjudeildarinnar og er töluvert frá toppliði Fram en þar munar 13 stigum.
Jóhann gekk í það heilaga í dag stuttu eftir leikinn við Gróttu og vekur athygli að hann mætti í athöfnina í takkaskóm.
„Jóhann Helgi reimaði á sig skrúfutakkana í hádeginu i gær. Setti eitt á móti Gróttu og setti svo þrennu í Akureyrarkirkju i dag," skrifar Óðinn Svan Óðinsson á Twitter og birti um leið mynd af Jóhanni.
Þetta skemmtilega atvik má sjá hér fyrir neðan.
Jóhann Helgi reimaði á sig skrúfutakkana í hádeginu i gær. Setti eitt á móti Gróttu og setti svo þrennu í Akureyrarkirkju i dag 👑 pic.twitter.com/gGIGZZZFK9
— Óðinn Svan Óðinsson (@OdinnSvan) July 24, 2021
Athugasemdir