Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 24. ágúst 2016 20:43
Jóhann Ingi Hafþórsson
Frostaskjóli
Edda: Erum með skotæfingar, skotkeppnir og allan andskotann
Edda Garðarsdóttir, þjálfari KR.
Edda Garðarsdóttir, þjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Edda Garðarsdóttir, þjálfari KR var svekkt eftir 1-0 tap gegn Þór/KA í Frostaskjóli í kvöld.

Staðan var markalaus í hálfleik en Sandra María Jessen skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik. Edda var ekki ánægð með að sitt lið leitaði í langa bolta í leiknum.

Lestu um leikinn: KR 0 -  1 Þór/KA

„Taugarnar, við vorum svolítið að puðra boltanum í staðin fyrir að vera skynsamari áður en við puðruðum honum."

KR er nú fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni en Edda segir KR-inga ekki vera búna að missa trúna.

„Það er mikilvægast í svona aðstæðum að missa ekki trúna, það er nóg eftir."

KR hefur ekki skorað í fimm leikjum í röð en Edda segir liðið æfa skot reglulega.

„Það eru meiri líkur að maður skori ef maður hittir á markið en þá verður maður að skjóta á markið. Við erum reglulega með skotæfingar, skotkeppnir og allan andskotann," sagði Edda.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner