Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 24. ágúst 2016 21:43
Jóhann Ingi Hafþórsson
Enski deildabikarinn: Hörður og Raggi mætast
Raggi Sig mætir Herði Björgvini og félögum.
Raggi Sig mætir Herði Björgvini og félögum.
Mynd: .
Paul Pogba fer á heimavöll Northampton
Paul Pogba fer á heimavöll Northampton
Mynd: Getty Images
Dregið var í 3. umferð deildabikarsins í kvöld en toppliðin á Englandi koma inn í þessari umferð.

Englandsmeistarar Leicester fá Chelsea í heimsókn, Northampton og Manchester United eigast við, Derby fær heimsókn frá Liverpool, Tottenham fær Gillingham, Gylfi Þór Sigurðsson og félagar fá Manchester City á meðan Ragnar Sigurðsson og nýju félagar hans í Fulham fá Hörð Björgvin Magnússon og félaga í Bristol City.

Gamla stórveldið, Nottingham Forrest fær svo Arsenal í áhugaverðum leik.

Leicester - Chelsea

Stoke - Hull City

Newcastle - Wolves

Brighton - Reading

Northampton - Manchester United

Derby - Liverpool

Everton - Norwich

Tottenham - Gillingham

Bournemouth - Preston

Fulham - Bristol City

Swansea - Manchester City

Southampton - Crystal Palace

West Ham - Accrington

QPR - Sunderland

Leeds - Blackburn

Nottingham Forrest - Arsenal

Athugasemdir
banner
banner