Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. ágúst 2016 14:30
Elvar Geir Magnússon
Phil Jones í áætlunum Jose Mourinho
Phil Jones og Zlatan æfa sig.
Phil Jones og Zlatan æfa sig.
Mynd: Getty Images
Phil Jones hefur fengið þau skilaboð að hann eigi sér enn framtíð hjá Manchester United. Jones hefur ekki komist í hóp í fyrstu leikjum United undir stjórn Jose Mourinho í ensku úrvalsdeildinni.

Mark Bowen, aðstoðarstjóri Stoke, hefur sagt að Stoke vilji fá varnarmanninn sem á 20 landsleiki að baki fyrir England.

Mourinho telur sig hinsvegar hafa not fyrir þennan 24 ára leikmann sem gekk i raðir United frá Blackburn 2011. Hann er samningsbundinn til 2019.

Eftir að hafa rætt við Mourinho vill Jones vera áfram hjá United.
Athugasemdir
banner
banner