„Þetta var rosalega mikil vinna, það skapaði mikla þolinmæði en við náðum þessu á endanum," sagði Sandra María Jessen um 1-0 sigur Þór/KA á KR í Frostaskjóli í dag.
Sandra skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik og lýsti hún markinu fyrir okkur.
Sandra skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik og lýsti hún markinu fyrir okkur.
Lestu um leikinn: KR 0 - 1 Þór/KA
„Það kemur há fyrirgjöf inn í frá hægri kanti, ég tek hann niður og setti hann í hornið. Ég hefði klárlega getað sett fleiri sjálf."
Þór/KA er í 4. sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Val og segir Sandra það vera markmiðið að ná þeim.
„Nú er það að gefa í og við ætlum klárlega ekki að tapa fleiri stigum."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir