Brynjar Skúlason þjálfari Hugins var orða vant eftir að lið hans féll niður um deild eftir 4-1 tap gegn Selfyssingum í dag. Þegar Brynjar var beðinn um að lýsa andrúmsloftinu inní klefa eftir leikinn var svarið einfalt
„Það er bara ömurlegt. Það er ekki hægt að segja neitt meira um það."
„Það er bara ömurlegt. Það er ekki hægt að segja neitt meira um það."
„Ætli við höfum ekki átt okkar lélegasta leik á tímabilinu hér í dag sem er náttúrulega ótrúlegt miðað við það hversu mikið undir var í dag. Til hamingju Leiknismenn. Þeir stóðu sig vel og eiga þetta bara skilið."
„Fyrir utan fyrstu 15 þá gátum við bara ekki blautann í leiknum. Við sendum ekki tvær sendingar innan liðsins og spiluðum kick and run eins og einhverjir aular. Selfyssingar voru bara miklu betri en við. Það var eins og við værum enganveginn tilbúnir til þess að spila fótboltaleik í dag."
„Það verða einhverjir að falla og núna erum það við. Við hysjum bara upp um okkur buxurnar og byrjum upp á nýtt, það er bara þannig."
Brynjar segist ætla að halda áfram með liðið nema hann verði rekinn.
„Ég veit ekki, ég er með samning. Ef ég verð ekki rekinn þá held ég áfram."
Athugasemdir