Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. september 2016 19:27
Jóhann Ingi Hafþórsson
Conte: Þurfum að ná síðustu leiktíð úr kerfinu
Antonio Conte
Antonio Conte
Mynd: Getty Images
„Við vorum ekki rétt stilltir í dag. Við verðum að vinna í ákveðnum hlutum því við erum með gott lið á pappírnum en þegar það gengur illa hjá liðinu getur verið erfitt fyrir leikmenn að spila vel," sagði Antionio Conte, þjálfari Chelsea, eftir 3-0 tap gegn Arsenal í dag.

Gary Cahill gerði sig sekan um hræðileg mistök þegar Arsenal skoraði fyrsta markið.

„Mig langar ekki að tala um mistökin hjá Gary Cahill. Við vinnum og töpum sem lið."

„Það er fáranlegt að fá á sig þrjú mörk og við verðum að ná síðustu leiktíð úr kerfinu okkar," sagði Conte.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner