Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. september 2016 19:20
Jóhann Ingi Hafþórsson
Guardiola: Aguero einn besti framherji í heiminum
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: Getty Images
„Við spiluðum mjög vel en síðasta sendingin klikkaði svolítið oft í fyrri hálfleiknum en þetta er í fyrsta skipti sem við erum ekki yfir í hálfleik." sagði Pep Guardiola, þjálfari Manchester City eftir 3-1 sigur á Swansea í dag.

Hann var hrifnari af seinni hálfleiknum og sérstaklega frammistöðu Sergio Aguero sem skoraði tvö mörk í dag.

„Við spiluðum betur í seinni hálfelik og Aguero sýndi að hann er einn besti framherji í heiminum."

Kevin de Bruyne fór meiddur af velli í leiknum en Pep veit ekki hversu alvarlegt það er.

„Ég veit ekki hvað það er alvarlegt en við erum með stóran hóp."
Athugasemdir
banner
banner