Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 24. september 2016 18:35
Fótbolti.net
Ian Jeffs veikur - Stýrir ÍBV ekki gegn Val á morgun
Ian Jeffs, þjálfari ÍBV.
Ian Jeffs, þjálfari ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ian Jeffs gat ekki stýrt kvennaliði ÍBV í dag þegar liðið vann FH en Jeffs er veikur.

Fréttaritari Fótbolta.net fékk þær upplýsingar í dag að hann yrði ekki á hliðarlínunni á morgun þegar Eyjamenn leika gegn Val á Hásteinsvelli í næst síðustu umferð Pepsi-deildar karla.

Jeffs og Alfreð Elías Jóhannsson þjálfa karlalið ÍBV saman út tímabili en Alfreð verður einn við stjórnvölinn í þessum mikilvæga leik á morgun.

Eyjamenn eru í 10. sæti, aðeins stigi á undan Fylki sem er í fallsæti.

Leikirnir sem eru á morgun:
14:00 ÍA-Breiðablik (Norðurálsvöllurinn)
14:00 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
14:00 Víkingur Ó.-KR (Ólafsvíkurvöllur)
14:00 Fylkir-Þróttur R. (Floridana völlurinn)
14:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
14:00 Fjölnir-Stjarnan (Extra völlurinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner