Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 24. september 2016 13:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Tvífari Zlatan hljóp inn á völlinn
Mynd: Getty Images
Mjög skemmtilegt atvik átti sér stað í fyrri hálfleik í leik Manchester United og Leicester City á Old Trafford.

Um miðjan fyrri hálfleikinn kom maður inn á völlinn til þess að heilsa upp á sænska sóknarmanninn, Zlatan Ibrahimovic hjá Manchester United.

Þetta gerist oft í fótboltanum, að áhorfandi hleypur inn á völlinn, en í þetta skiptið var þetta nokkuð sérstakt þar sem maðurinn var nauðalíkur Zlatan.

Staðan í leiknum þegar þessi frétt er skrifuð er 4-1 fyrir Manchester United. Chris Smalling, Juan Mata, Marcus Rashford og Paul Pogba skoruðu fyrir United, en Demarai Gray minnkaði þegar klukkutími var búinn af leiknum.

Smelltu hér til þess að skoða þetta á Twitter.
Athugasemdir
banner
banner
banner