Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 24. september 2016 20:10
Jóhann Ingi Hafþórsson
Sviss: Birkir spilaði tíu mínútur í sigri
Basel er enn með fullt hús stiga í svissnesku úrvalsdeildinni eftir 3-1 sigur á St Gallen í dag.

St Gallen komst samt sem áður yfir í leiknum er Marco Aratore kom þeim yfir.

Skömmu síðar var Matias Emilio Delgado búinn að jafna og var staðan 1-1 í hálfleik.

Roy Gelmi varð fyrir því óláni að skora í sitt eigið mark í seinni hálfleiknum og komst Basel því yfir en Seydou Doumbia skoraði úr vítaspyrnu í blálokin og gulltryggði sigurinn.

Basel hefur yfirburði í deildinni en lðiði hefur unnið níu fyrstu leiki sína.
Athugasemdir
banner
banner
banner