Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 24. september 2017 16:28
Magnús Már Einarsson
Bjössi Hreiðars: Menn eru ekki að velja sér verkefni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum að koma á erfiðan útivöll og við þurftum að vera beinskeyttir," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, eftir 2-1 útisigur á Stjörnunni í dag.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  2 Valur

Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn um síðustu helgi en liðið landaði öflugum sigri í dag þrátt fyrir að titillinn sé í höfn.

„Það er hungur í liðinu. Þú ert að sýna sjálfan þig í hverjum einasta leik og menn í hópnum eru ekki að velja sér verkefni. Menn taka á því þegar við förum inn á völlinn í Valsbúningum. Til að viðhalda árangri þá þurfa menn að gera það alltaf."

Patrcik Pedersen hefur lítið verið með Val að undanförnu og hann var ónotaður varamaður í dag.

„Við vonumst til aðhann verði klár í næsta leik. Hann hefur verið með kálfa vandræði og við höfum ekki hætt á að spila honum. Við sjáum hvað setur," sagði Sigurbjörn en Valur mætir Víkingi R. í lokaumferðinni um næstu helgi.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner