Remo Freuler jafnaði á 94. mínútu í 1-1 jafntefli Atalanta gegn Fiorentina.
Papu Gomez brenndi af vítaspyrnu fyrir Atalanta í leiknum og er Freuler ósáttur að hafa ekki unnið leikinn.
Papu Gomez brenndi af vítaspyrnu fyrir Atalanta í leiknum og er Freuler ósáttur að hafa ekki unnið leikinn.
„Ég er reiður út í sjálfan mig fyrir að klúðra færinu í upphafi leiksins, jöfnunarmarkið í endan var það sem ég þurfti til að bæta upp fyrir klúðrið," sagði Freuler við Mediaset Premium að leikslokum.
„Sportiello var frábær í marki Fiorentina. Við töpuðum stigum í kvöld, við erum með betra lið en Fiorentina og hefðum átt að skora fleiri mörk."
Freuler bætti við að liðið þurfi strax á morgun að byrja að einbeita sér að næsta leik, gegn Lyon í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.
Athugasemdir