Jón Þór Hauksson, þjálfari Skagamanna, var svekktur með að fá bara eitt stig gegn Víkingi R. í Fossvoginum í dag.
„Við vorum miklu betri og fáum urmul færa til að skora og ef allt væri eðlilegt eigum við að leiða í hálfleik. Við sköpuðum mikinn usla í vítateig Víkinga bæði úr föstum leikatriðum og góðri spilamennsku."
Jón Þór Hauksson tók við stjórnartaumunum af Gunnlaugi Jónssyni á miðju tímabili. Hann stefnir að vera áfram og koma liðinu upp aftur í Pepsi deildina að ári.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 0 ÍA
„Framtíðin er björt á Akranesi. Það er vel staðið að málunum og kjarni af ungum leikmönnum sem eru spennandi í bland við leikmenn sem hafa meiri reynslu. Þannig að ég tel að við eigum klárlega að keppa um það að komast aftur upp." sagði Jón að lokum.
Athugasemdir