Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   sun 24. september 2017 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjartan um mark sitt: Veit ekki hvar boltinn fór í mig
Mynd: Getty Images
Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum þegar Horsens lagði Helsingor að velli í dönsku úrvalsdeildinni í gær.

Markið sem hann skoraði í leiknum var afar skrautlegt, en boltanum var sparkað í hann og inn.

Smelltu hér til að sjá myndband af markinu. Markið kemur eftir 1 mínútu og 50 sekúndur

Kjartan spilaði leikinn meiddur og var búinn að taka verkjalyf áður en hann byrjaði. Hann vissi ekki hvar boltinn hefði farið í sig.

„Ég veit ekki hvar boltinn fór í mig, en hann fór í markið," sagði Kjartan í samtali við hsfo.dk.

„Ég var ánægður að geta spilað þennan leik þar sem faðir minn var í Horsens. Hann var í fyrsta sinn að horfa á mig spila hérna."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner