Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. september 2017 15:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rússland: Svekkjandi tap hjá Sverri og félögum
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Roston 0 - 1 Lokomotiv Moskva
0-1 Eder ('93)

Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason spilaði allan leikinn í vörninni hjá rússneska liðinu Rostov í dag.

Rostov fékk heimsókn frá Lokomotiv Moskvu.

Lokomotiv Moskva var með fjórum stigum meira en Rostov fyrir leikinn, en úr varð hörkuleikur. Það var aðeins eitt mark skorað, en það gerði hinn portúgalski Eder, sem spilaði fyrir Swansea fyrir nokkrum árum. Markið skoraði hann í uppbótartíma.

Svekkjandi tap hjá Sverri og félögum sem eru í fimmta sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar með 16 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner