Sóknarmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen var hetja Breiðabliks gegn ÍBV en hann skoraði flautumark í lokin og tryggði sigur. Sigurinn gerir það að verkum að Blikar eru öruggir með sæti sitt í deildinni.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 2 ÍBV
Sveinn gekk í raðir Blika frá Val í sumar.
„Ég var sjálfur ekki stressaður yfir því að við myndum falla, það þurfti mikið að gerast. En ég er auðvitað ánægður með að klára þetta. Við erum með frábæran og skemmtilegan hóp en við þurfum að koma klárir inn í næsta tímabil," segir Sveinn Aron.
Hann skoraði líka sigurmark Vals gegn ÍBV fyrr í sumar og segir að hann væri til í að spila gegn ÍBV hverja einustu helgi.
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir