Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 24. september 2017 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Wenger: Sárast að sjá Gibbs fara
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger segir að það hafi verið erfiðara að kveðja Kieran Gibbs heldur en Alex Oxlade-Chamberlain í sumar.

Gibbs var seldur til West Bromwich Albion á meðan Chamberlain fór til Liverpool á lokadegi gluggans.

„Það var erfiðara að kveðja Gibbs heldur en Chamberlain því Gibbs hefur verið hérna síðan hann var 10 ára," sagði Wenger.

„Hann kom sem kantmaður en ég breytti honum í bakvörð því ég sá að hann er gáfaður leikmaður og afar snöggur.

„Við tókum þetta sem sameiginlega ákvörðun, hann er á ákveðnum aldri þar sem maður vill vera byrjunarliðsmaður. Ég gat ekki staðið í vegi fyrir félagsskiptunum, en þetta var eins og að missa fjölskyldumeðlim."

Athugasemdir
banner
banner
banner