Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 24. október 2014 09:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: Mosfellingur 
Arnór Gauti til Reading og Brighton á reynslu
Mynd: Raggi Óla
Arnór Gauti Ragnarsson, framherji úr Breiðabliki, mun í næstu viku fara til Englands þar sem hann verður á reynslu hjá Reading og Brighton.

Arnór mun dvelja í fimm daga við æfingar hjá hvoru félagi en þetta kemur fram í bæjarblaðinu Mosfellingi.

Arnór Gauti er fæddur árið 1997 en hann var í sumar á yngsta ári í öðrum flokki.

Þá var hann í leikmannahópi Breiðabliks í lokaumferðinni í Pepsi-deildinni.

Arnór var í yngri flokkum Aftureldingar en hann skipti yfir í Breiðablik síðastliðinn vetur. Brighton hefur í tvígang séð hann spila hér heima. Fyrst með Aftureldingu og síðan í sumar með Blikum.
Athugasemdir
banner
banner