Pep Guardiola, þjálfari Bayern München í Þýskalandi, vill sjá meira frá Mario Götze þrátt fyrir magnaða byrjun hans í byrjun tímabils.
Götze, sem er 22 ára gamall, skoraði 16 mörk í 38 leikjum á fyrsta tímabili með Bayern eftir að hafa komið frá erkifjendum þeirra í Borussia Dortmund.
Hann er nú þegar kominn með 6 mörk í 7 leikjum en Guardiola neitar að hrósa honum og vill sjá meira frá honum.
,,Ég vil meira. Hann er með mögnuð gæði en Bayern vill sjá meira frá honum. Við höfum talað um þetta og hann er tilbúinn að takast á við þetta," sagði Guardiola.
Athugasemdir