Arnar Skúli Atlason hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari hjá kvennaliði Tindastóls sem leikur í 1. deild kvenna.
Arnar Skúli var í sumar einn af þjálfurum m.fl. kvenna en tekur nú við keflinu sem aðalþjálfari.
„Þarna er á ferð ungur og metnaðarfullur þjálfari sem stjórn knattspyrnudeildarinnar hefur mikla trú á," segir í tilkynningu félagsins.
Samhliða ráðningu hans var gengið frá ráðningu Christopher Harrington sem aðstoðarþjálfara.
Tindastóll mun næsta sumar leika í 1.deild í nýrri deildarkeppni en næsta sumar verða þrjár deildir.
Athugasemdir