Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 24. október 2016 13:00
Magnús Már Einarsson
Hefur byrjað 32 leiki með Sunderland - Aldrei unnið
Mynd: Getty Images
Jack Rodwell hefur ekki átt góðu gengi að fagna síðan hann kom til Sunderland frá Manchester City sumarið 2014.

Rodwell hefur síðan þá spilað 32 leiki í byrjunarliði Sunderland en liðið hefur ekki unnið neinn af þeim!

15 af þessum leikjum hafa endað með jafntefli og 17 sinnum hefur Sunderland tapað.

Sunderland hefur ekki unnið í fyrstu níu umferðunum á þessu tímabili en Rodwell hefur byrjað í sex af þessum leikjum.

Hinn 25 ára gamli Rodwell þótti mikið efni þegar Manchester City keypti hann frá Everton árið 2012 en síðan hefur ferillinn legið niður á við.
Athugasemdir
banner
banner
banner