Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 24. október 2016 07:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Isco búinn að leggja upp meira en nokkur annar miðjumaður
Isco
Isco
Mynd: Getty Images
Isco er búinn að leggja upp fleiri mörk en aðrir miðjumenn Real Madrid síðan hann kom til félagsins en hann lagði upp mark á Karim Benzema í 2-1 sigrinum á Athletic Bilbao í gærkvöldi.

Spánverjinn hefur verið inn og út úr liði Real síðan hann kom til félagsins en þrátt fyrir það, lagði hann upp 31. markið sitt í gær.

Benzema, Bale og Ronaldo eru einu leikmennirnir sem hafa lagt upp meira en Isco.

James Rodriguez er sá miðjumaður sem kemst næst Isco en hann er með 30 stoðsendingar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner