Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 24. október 2016 07:30
Kristófer Kristjánsson
Koscielny: Yfirgef Arsenal bara fyrir eitt félag
Laurent Koscielny er einn besti hafsentinn á Englandi í dag
Laurent Koscielny er einn besti hafsentinn á Englandi í dag
Mynd: Getty Images
Hinn 31 árs gamli Laurent Koscielny, varnarmaður Arsenal, hefur gefið það upp að hann myndi einungis yfirgefa Arsenal fyrir eitt lið.

Frakkinn hefur verið einn af lykilmönnum Arsenal síðan hann kom til félagsins frá frönsku úrvalsdeildinni árið 2010.

Frammistöður hans hafa vakið áhuga ýmissa stórliða, m.a. Paris Saint-Germain en Koscielny segist vera tilbúinn til að klára ferilinn á Englandi.

Í viðtalið við L'Equipe segir hann; „Flytja til París? Ég mun aldrei búa þar né spila. Ég mun klára ferilinn á Englandi eða hjá Lorient," en hann lék hjá Lorient áður en Arsene Wenger keypti hann til Arsenal.


Athugasemdir
banner