Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 24. nóvember 2014 19:08
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Villa og Southampton: Benteke ekki með
Dusan Tadic er í byrjunarliði Southampton í kvöld
Dusan Tadic er í byrjunarliði Southampton í kvöld
Mynd: Getty Images
Lokaleikur tólftu umferðar ensku Úrvalsdeildarinnar er í kvöld þar sem Aston Villa fær Southampton í heimsókn.

Villa hefur ekki byrjað tímabilið vel og er einu stigi frá fallsæti á meðan Southampton er í öðru sæti, sjö stigum frá toppliði Chelsea.

Heimamönnum vantar marga leikmenn vegna meiðsla og er Christian Benteke fjarverandi vegna leikbanns. Andreas Weimann leiðir sókn heimamanna í fjarveru Belgans stóra.

Í liði Southampton er Graziano Pelle fremstur ásamt Shane Long. Dusan Tadic og Morgan Schneiderlin voru tæpir fyrir leikinn en byrja báðir.

Southampton hefur unnið fjóra leiki í röð í deildinni án þess að fá mark á sig, enda er liðið aðeins búið að fá fimm mörk á sig á tímabilinu.

Aston Villa: Guzan, Hutton, Okore, Clark, Cissokho, Sanchez, Westwood, Cleverley, Weimann, N’Zogbia, Agbonlahor
Varamenn: Given, Bacuna, Cole, Richardson, Bent, Lowton, Grealish

Southampton: Forster, Clyne, Fonte, Alderweireld, Bertrand, Schneiderlin, Wanyama, Mane, Tadic, Long, Pelle
Varamenn: K. Davis, Yoshida, Gardos, Cork, Mayuka, Reed, Targett
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner