Máni Austmann Hilmarsson spilaði um helgina sinn fyrsta leik með U19 ára liði FC Kaupmannahafnar.
Máni gerði sér lítið fyrir og skoraði í sínum fyrsta leik með liðinu.
Máni gerði sér lítið fyrir og skoraði í sínum fyrsta leik með liðinu.
Hinn 16 ára gamli Máni hefur leikið með U17 ára liði FC Kaupmannahafnar en hann er nú byrjaður að leika með 19 ára liðinu.
Máni og tvíburabróðir hans Dagur gengu til liðs við FC Kaupmannahöfn í lok síðasta árs eftir að hafa áður leikið með yngri flokkum Vals og Stjörnunnar.
Athugasemdir