Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. nóvember 2015 22:08
Elvar Geir Magnússon
Eggert Gunnþór með mikilvægt mark fyrir Fleetwood
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eggert Gunnþór Jóns­son opnaði markareikning sinn fyrir enska C-deildarliðið Fleetwod Town í kvöld.

Hann braut ísinn í 2-1 sigri gegn Millwall með því að skora með skalla á 66. mínútu.

Á 88. mínútu skoraði Bobby Grant og kom Fleetwood í 2-0 áður en Byron Webster minnkaði muninn fyrir Millwall í uppbótartíma.

Þetta var mikilvægur sigur hjá Fleetwood sem er í baráttu í neðri hlutanum og er nú tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.

Millwall situr í ellefta sæti en á toppi deildarinnar er Coventry sem gerði markalaust jafntefli gegn Bradford City á útivelli í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner