Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 24. nóvember 2015 21:54
Jóhann Ingi Hafþórsson
Einkunnir úr Arsenal - Dinamo Zagreb: Özil og Sanchez bestir
Mesut Özil átti glæsilegan leik í kvöld.
Mesut Özil átti glæsilegan leik í kvöld.
Mynd: Getty Images
Arsenal vann í kvöld afar góðan 3-0 sigur á Dinamo Zagreb í Meistaradeild Evrópu og héldu þeir sér lifandi í keppninni með sigrinum.

Enska liðið varð að vinna og treysta á að Bayern Munchen myndi vinna Olympiakos og sú varð raunin. Arsenal og gríska liðið mætast svo í hreinum úrslitaleik í síðustu umferðinnu upp á hvort liðið komist í 16 liða úrslitin.

Í leiknum í kvöld voru Alexis Sanchez og Mesut Özil menn leiksins en þeir skoruðu mörkin í 3-0 sigri liðsins. Sanchez var með tvö og Özil eitt. Þeir léku hvað eftir annað vel á milli sín og réðu varnarmenn króatíska liðsins ekkert við þá.

Einkunnir úr leiknum má sjá hér að neðan.

Einkunnir Arsenal:
Petr Cech- 6
Hector Bellerin- 6
Per Mertesacker- 6
Laurent Koscielny- 6
Nacho Monreal- 7
Santi Cazorla- 7
Matheu Flamini- 6
Joel Campbell- 7
Mesut Özil- 8
Alexis Sanchez- 8
Olivier Giroud- 6
Varamenn:(Ramsey 5)

Einkunnir Dinamo Zagreb
Eduardo- 6
Alexandru Matel- 5
Jeremy Tavarel- 5
Leandro Sigali-3
Ivo Pinto- 4
Junior Fernandes- 4
Domagoj Antolic- 5
Goncalo Santos- 3
Paulo Machado- 4
Marko Pjaca- 5
Marko Rog- 4
Athugasemdir
banner
banner
banner