Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. nóvember 2015 13:44
Magnús Már Einarsson
Katrín Ómarsdóttir á förum frá Liverpool
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Katrín Ómarsdóttir er á förum frá Liverpool en enska félagið greindi frá þessu í dag.

Liverpool endaði í sjöunda og næstneðsta sæti í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.

Katrín var að leika sitt þriðja tímabil með Liverpool en hún samdi við félagið í byrjun árs 2013. Í kjölfarið varð hún tvívegis enskur meistari með liðinu.

„Ég hlakka takast á við nýja áskorun og byggja ofan á það sem ég hef gert hjá Liverpool," sagði Katrín á Twitter í dag.

Hin 28 ára gamla Katrín er uppalin hjá KR en hún spilaði með Kristianstads DFF í Svíþjóð áður en hún gekk í raðir Liverpool.

Katrín á 64 leiki að baki með A-landsliði kvenna en síðasti leikur hennar var gegn Sviss í maí í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner