Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. nóvember 2015 16:03
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Norsk langamma elskar að halda bolta á lofti
Mynd: Vimeo
Langamman Åse Marie Nordhagen í Noregi hefur vakið mikla athygli fyrir færni sína í að halda bolta á lofti.

Hún segist hafa leikið sér að því að halda bolta á lofti alla sína ævi og stundi það enn í dag því það færi hana aftur til æskuárana.

Åse Marie er 90 ára gömul en persónulegt met hennar er að halda boltanum á lofti 1.003 sinnum!

Sjáðu brot af tilþrifum langömmunnar í myndbandinu hér að neðan.

Triksedronninga Åse Marie Nordhagen from LL Ryfylke on Vimeo.


Athugasemdir
banner
banner
banner