þri 24. nóvember 2015 06:00
Magnús Már Einarsson
Skráning hafin í Njarðvíkurmótin
Mynd: Njarðvík
Knattspyrnudeild Njarðvíkur mun standa fyrir knattspyrnumótum í janúar og febrúar 2016 fyrir drengi í 4., 5., 6. og 7. flokki.

Leikið verður við frábærar aðstæður í Reykjaneshöllinni.Í 7. og 6. flokki verður í fyrsta skipti á Njarðvíkurmóti spilaður fimm manna bolti í 6. og 7. flokki.

Í 5. flokki verður spilaður sex manna bolti og 11 manna í 4. flokki.

Af gefnu tilefni skal á það bent að venjulega fyllist í mótin á nokkrum dögum. Því er rétt að bregðast skjótt við varðandi skráningar.

Leikið verður á eftirtöldum dagsetningum:
10. janúar, sunnudagur: 4. flokkur karla
17. janúar, sunnudagur: 7. flokkur karla
24. janúar, sunnudagur: 5. flokkur karla
7. febrúar, sunnudagur: 6. flokkur karla

Mótaskráin er hér til hliðar.

Skráningar sendist á netfangið [email protected]
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner