Edinson Cavani framherji PSG hefur verið duglegur við markaskorun á tímabilinu og er búinn að skora 25 mörk í 26 leikjum í öllum keppnum.
Ásamt honum hafa þeir Neymar og Kylian Mbappe einnig verið duglegir að skora og mörkin sem þessir þrír eru búnir að skora á tímabilinu eru samtals 54, Neymar er kominn með sautján mörk og Mbappe tólf.
Edinson Cavani telur þó að sóknartríóið eigi enn eftir að sýna sitt besta.
„Ég myndi segja að við værum með mjög góða sóknarlínu, við erum að tala um tvo framúrskarandi leikmenn þar, en þrátt fyrir það segi ég það að við eigum enn eftir að sýna okkar besta."
Athugasemdir