Louis Van Gaal fyrrum þjálfari Manchester United segir að Daley Blind þurfi að yfirgefa liðið til þess að fá spiltíma.
Blind byrjaði fyrstu þrjá leiki United í ensku úrvalsdeildinni í vetur en hefur síðan þá einungis spilað eina mínútu.
Van Gaal sem keypti Blind til liðsins árið 2014 telur að Blind eigi skilið að fá fleiri tækifæri í liðinu. Hann telur að það gæti hentað leikmanninum vel að fara til Barcelona í janúar.
„Hann er oft ekki einu sinni á bekknum. Hann er fjölhæfur leikmaður, hjá Barcelona myndi hann aldrei sitja upp í stúku."
„Ég held hann passi líka betur inn hjá Barcelona. Leikstíllinn hans hentar betur fyrir spænska boltann."

Athugasemdir