Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   sun 25. janúar 2015 12:50
Arnar Geir Halldórsson
Bale: Getum spilað vel án Ronaldo
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo fékk rautt spjald þegar Real Madrid marði sigur á Cordoba í spænska boltanum í gær.

Eftir að Ronaldo var rekinn af velli á 81.mínútu í stöðunni 1-1 kom Gareth Bale til bjargar og tryggði toppliðinu sigur með marki úr vítaspyrnu.

,,Þetta var erfiður leikur en sem betur fer náðum við sigrinum. Við sýndum mikinn karakter. Völlurinn var lélegur en hann var auðvitað lélegur fyrir þá líka." sagði Walesverjinn.

Cristiano Ronaldo er á leið í bann en Bale hefur ekki áhyggjur af því.

,,Rauða spjaldið var vonbrigði en ég sá ekki hvað gerðist svo ég get ekkert sagt um það. Við höfum stóran hóp og höfum spilað áður án hans og það hefur gengið vel." sagði Bale.
Athugasemdir
banner
banner
banner