Króatíski landsliðsmaðurinn Marcelo Brozovic er genginn til liðs við Inter Milan frá Dinamo Zagreb.
Brozovic hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu með Dinamo í heimalandinu og unnið sér sæti í landsliðinu en þessi 22 ára gamli miðjumaður var einnig orðaður við Arsenal.
Brozovic gekkst undir læknisskoðun í Mílanóborg í morgun en kaupverðið er talið vera í kringum 10 milljónir evra. Hjá Inter hittir hann fyrir landa sinn, Mateo Kovacic, en Króatar binda miklar vonir við þessa tvo miðjumenn.
Roberto Mancini hefur verið duglegur á leikmannamarkaðnum í janúar en Brozovic er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Inter í þessum mánuði. Áður hafði liðið nælt í Lukas Podolski og Xerdan Shaqiri.
Athugasemdir