Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. janúar 2015 14:18
Arnar Geir Halldórsson
Byrjunarlið Aston Villa og Bournemouth: Given í markinu
Benteke er á sínum stað í byrjunarliði Villa
Benteke er á sínum stað í byrjunarliði Villa
Mynd: Getty Images
Aston Villa fær topplið Championship deildarinnar í heimsókn á Villa Park í 4.umferð enska bikarsins en leikurinn hefst klukkan 15 og er sýndur á Stöð 2 Sport 3.

Paul Lambert stillir upp sínu sterkasta liði að því undanskildu að Brad Guzan er settur á bekkinn og í markið kemur gamla brýnið Shay Given.

Bournemouth er eins og áður segir á toppi Championship deildarinnar en á meðal leikmanna liðsins er Ian Harte sem gerði garðinn frægan með Leeds undir lok síðustu aldar.

Byrjunarlið Aston Villa:Given, Hutton, Okore, Clark [c], Richardson, Bacuna, Cleverley, Sanchez, Gil, Weimann, Benteke.

Byrjunarlið Bournemouth:Camp, Smith, Elphick, Cook, Harte, Stanislas, Arter, O'Kane, MacDonald, Fraser, Kermorgant.
Athugasemdir
banner